Taktu þátt
Prófaðu þetta verkefni til að aðstoða rannsakendur um heim allan og gera gæfumuninn.
Hvað er heimildaskrásetning?
Skrásetning er sjálfboðaliðaverkefni sem gerir myndir af söguheimildum —eins og manntöl eða dánarvottorð— leitanlegar á netinu. Það er frábær leið til að gefa til baka til ættfræðisamfélagsins og gera það mögulegt að læra um skyldmenni.
Hvernig þetta virkar
Ekki er hægt að finna óskrásetta mynd af söguheimild með leitarvél. Ekki er hægt að finna nein orð sem tengjast henni.
Skrásetningarmaður í sjálfboðastarfi skoðar heimildina í skrásetningarforritinu og slær inn mikilvægar upplýsingar, svo sem nöfn, dagsetningar og staðsetningar. Þetta leiðir af sér skrásetta mynd sem bætt er við tiltækar, gjaldfrjálsar, leitanlegar heimildir á FamilySearch.
Skrásetning er styrkt og hýst af FamilySearch, þjónustu sem veitt er af Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu.
Prófa það
Farðu á heimasíðu skrásetningar til að skrá þig inn á FamilySearch og veldu „bunka“ af myndum til að skrásetja. Það eru í boði verkefni á fjölmörgum tungumálum. Verðu eins miklum eða litlum tíma í þetta og þú átt aflögu. Það eru hjálparúrræði innbyggð í kerfið til að svara spurningum.