Varðveittu gamlar fjölskyldumyndir áður en þær glatast

Allir eiga gamlar fjölskyldumyndir í skúffum, albúmum og á háaloftinu. FamilySearch auðveldar þér að varðveita, skipuleggja og deila myndum, sögum og skjölum sem varða áa þína svo að komandi kynslóðir geti notið þeirra.

Hvernig þetta virkar

Breyttu gömlum fjölskyldumyndum í varðveittar fjölskylduminningar í örfáum skrefum.

Fyrsta skref

Hladdu upp gamalli fjölskyldumynd

Taktu mynd eða skannaðu hvaða gömlu fjölskyldumynd sem er, jafnvel þótt hún sé fölnuð, rifin eða samanbrotin í gömlu albúmi.

Annað skref

Bættu við nöfnum og upplýsingum

Merktu fólkið á myndinni, bættu við dagsetningum, staðarheitum og frásögnum og tengdu myndina við rétta áann.

Þriðja skref

Deildu henni með fjölskyldu þinni

Þegar myndinni hefur verið hlaðið upp geta ættingjar fundið hana, notið hennar og bætt við upplýsingum sem auðga sameiginlega fjölskyldusögu ykkar.

Gömul brúðkaupsmynd með merktu fólki.

Meira en bara ljósmyndir

Minningar FamilySearch hjálpa þér að varðveita meira en bara ljósmyndir. Þú getur einnig bætt við sögum, gögnum og röddum sem færa ættarsögu þína til lífsins.

Ljósmyndir

Hladdu upp myndum af fjölskyldu þinni og forfeðrum, hvort sem þær eru skannaðar, ljósmyndaðar eða á stafrænu formi.

Skjöl

Varðveittu skönnuð bréf, dagbækur, vottorð, uppskriftir, herskjöl og önnur ættarheimildarskjöl.

Sögur

Sláðu inn ættarsögur, minningar og upplýsingar sem útskýra hverjir forfeður þínir voru og hvað skipti þá máli.

Hljóðupptökur

Taktu upp eða hladdu upp röddum foreldra, afa og ömmu og annarra ættingja sem segja sögur sínar með eigin orðum.

Albúm

Notaðu albúm til að safna saman tengdum minningum.

Byrjaðu í dag

Notaðu þessa öflugu eiginleika til að varðveita og deila dýrmætum minningum þínum.

Af hverju að velja FamilySearch Memories?

Mörg öpp geta geymt ljósmyndir. FamilySearch Memories er hannað til að varðveita fjölskyldusöguna á hátt sem engin önnur þjónusta býður upp á.

Gjaldrfjálst og varðveitt fyrir komandi kynslóðir

Söguheimildir geta oft gefið mikilvægar upplýsingar um hvar fjölskylda þín bjó.

Skipulagt í kringum fólk og sögur

Ólíkt hefðbundnum ljósmyndaforritum tengir FamilySearch myndir, skjöl, sögur og hljóðupptökur beint við fólkið í ættartrénu þínu.

Tengt sameiginlegu ættartré

Fjarlægur ættingi gæti þegar hafa hlaðið upp mynd, sögu eða skjali um áa þinn.

Öruggt og fjölskylduvænt

FamilySearch notar virta efnisstaðla og heldur minningum lifandi einstaklinga lokuðum.

Þú heldur stjórninni

Veldu hvort minning sé opin öllum, lokuð öðrum en þér eða henni sé deilt með hópi. FamilySearch selur ekki gögnin þín.

Skráðu sögu fjölskyldunnar jafnóðum

Maður veit aldrei hvenær klassísk eða hjartnæm fjölskyldusaga eða tilefni til að taka mynd á sér stað. Vertu með á nótunum með farsímaappi FamilySearch Memories.

Sæktu Memories appið!

Algengar spurningar

Ekki láta gamlar fjölskyldumyndir safna ryki!

Sögurnar á bak við myndirnar þínar skipta máli! Varðveittu þær núna svo að fjölskylda þín geti notið þeirra um komandi kynslóðir.

Eða skráðu þig inn með: