Búðu til ættartré
Reyndu þessi verkefni til að byrja að skrásetja ættartrésgreinar þínar á FamilySearch.
Hvað er tréð?
Það er vaxandi safn af ættartölum. Fólk hvaðanæva að úr heiminum hefur bætt við sínum greinum í fjölda ára.
Fyrstu skref
Byrjaðu á foreldrum þínum og bættu við lifandi og látnum ættingjum eins langt aftur og þú getur. Stutt símtal eða textaskilaboð til eldri ættingja gæti hjálpað þér að fylla í eyðurnar.
Ábending: Ekki hafa áhyggjur af því að bæta við upplýsingum um lifandi einstaklinga þegar þú vinnur þig að hinum látnu. Allar upplýsingar um lifandi fólk er haldið friðhelgum.
Bæta fólki við tréð
Veldu (+) hnappinn til að bæta við fólki í tréð.
Bættu við nafni einstaklingsins ásamt fæðingar- eða dánardagsetningum og staðsetningu. Allt það sem þú hefur upplýsingar um eða getur komist að. Veldu síðan næst.
Tengjast samfélagsættartrénu
Þegar þú bætir nöfnum við tréð, leitum við að samsvörunum. Ef látin amma þín er til dæmis nú þegar í trénu, þá finnum við hana og tengjum ykkur. Það er algengt að finna samsvaranir — samfélagsættartréð er byggt með framlagi rannsakenda hvaðanæva að úr heiminum, yfir margra ára tímabil.
Fylgstu með heimildavísbendingum
Til viðbótar við það að leita að líklegum samsvörunum áa í ættartrénu, leitum við líka í söguheimildasafni okkar að öllum látnum áum sem þú bætir við. Þegar samsvörun finnst, þá sýnum við þér „vísbendingu“. Þú berð kennsl á vísbendingar með bláa tákninu sem birtist.
Fylgdu hlekknum til að fara í ættartréð og hefjast handa. Smelltu á (?) táknið efst á síðunni ef þú hefur spurningar eða vilt læra meira um hvernig þetta virkar.
Ábending: Skoðaðu vísbendingar til að sjá hvort samsvörunin er rétt. Ef hún er það, þá er þetta frábær leið til að bæta við nýjum greinum í ættartréð.