Finna áa í heimildum

Finna áa í heimildum

Heimildir geta grafið upp nýjar upplýsingar og búið til pappírsslóð fyrir ákveðinn áa.

Grunnatriði við leit að áum

Leit að áum þínum í safni söguheimilda er töluvert lík því að leita á Google. Þú slærð inn það sem þú veist um hvað sem þú vilt finna. Svo síar leitarvélin heilan haug af upplýsingum til að finna bestu svörin.

Fyrir leit að áum er gott að slá inn upplýsingar eins og nafn einstaklingsins og hvar og hvenær hann eða hún lifði og dó. Það er líka gagnlegt að geta slegið inn hvers konar sambönd, eins og maka, foreldra eða börn.

Sláðu inn það sem þú veist eða getur komist að frá ættingjum. Ekki hafa áhyggjur ef þú veist ekki allt saman; það er hægt að framkvæma leit með minniháttar upplýsingum.

Hvað á að gera næst

Söguheimildir hjálpa þér að safna saman atriðum ættarsögunnar. Þær geta veitt mikilvægar eða áhugaverðar upplýsingar eins og heimilisföng, nöfn skyldmenna og persónuleg atriði eins og hæð, augnlit og atvinnu. Þú gætir jafnvel fundið undirskrift áa þíns.

Vistaðu það sem þú finnur um áa á prófíl þeirra í ættartrénu. Það sem þú vistar verður varðveitt og sjálfkrafa miðlað ættingjum sem gætu verið að leita að sömu upplýsingum. Þessi atriði eru líka heimildir sem geta sannreynt lífsstaðreyndir einstaklingsins og hjálpað við að sanna sambönd.